Gera þarf samkomulag um frágang á námavinnslusvæði í Krossanesi

Framkvæmdaráð Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum að fela deildarstjóra framkvæmdadeildar að gera drög að samkomulagi við Skútaberg ehf., áður Arnarfell hf., um frágang á námavinnslusvæðinu í Krossanesi, með hvaða hætti skilum á námunni skuli háttað og hvenær verklok skulu vera.    

Ennfremur var deildarstjóra falið að skoða hvort sækja þurfi um framkvæmdaleyfi fyrir námunni vegna nýrra náttúruverndarlaga sem tóku gildi 1. júlí sl. Skútaberg ehf., áður Arnarfell hf., hefur til margra ára verið með samkomulag um námu- og efnisvinnslu í Krossanesi. Væntanlega fer að sjá fyrir endann á þessari námuvinnslu innan næstu tveggja ára og því nauðsynlegt að gera samkomulag við viðkomandi um það með hvaða hætti frágangi á svæðinu og skilum á námunni verði háttað, segir í bókun framkvæmdaráðs.

Nýjast