G Hjálmarsson bauð lægra í framkvæmdir á Gleráreyrum

Tvö tilboð bárust í framkvæmdir á Gleráreyrum, gatnagerð og lagnir, í útboði framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar og Norðurorku. Tilboðin voru opnuð í dag  og voru þau bæði yfir kostnaðaráætlun. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á um 31,5 milljónir króna en G Hjálmarsson hf. bauðst til að vinna verkið fyrir um 32,5 milljónir króna, eða um 103% af kostnaðaráætlun. GV gröfur ehf. buðu 44,3 milljónir króna, eða 140% af kostnaðaráætlun. Eftir er að fara yfir tilboðin en samkvæmt útboði skal verkinu að fullu lokið fyrir 1. maí í vor. Um er að ræða jarðvegsskipti og lagningu fráveitulagna, vatnslagna, rafstrengja, ídráttarröra og að reisa ljósastaura við götuna, sem er um 360 metrar að lengd.

Nýjast