17. mars, 2008 - 14:49
Fréttir
Fjölbreytt dagskrá er framundan í Akureyrarkirkju í páskavikunni. Á skírdag, 20. mars, verður kyrrðarstund kl. 12.00, fyrirbænir og
altarisganga. Kvöldmessa verður kl. 20.00. Endurminning síðustu kvöldmáltíðarinnar. Heimagert altarisbrauð. Forsöngvari: Eyþór Ingi
Jónsson. Á föstudaginn langa, 21. mars, hefst lestur Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar kl. 13.00. Lesarar eru landskunnir leikarar ásamt
leikmönnum. Blokkflautuleikarar úr Tónlistarskólanum á Akureyri annast tónlist á heilu tímunum. Molasopi í anddyri kirkjunnar. Hægt
að koma og fara að vild. Kyrrðarstund við krossinn kl. 21.00. Áhrifamikil samvera með söng og lestri úr píslarsögunni. Þráinn Karlsson
leikari les sjö orð Krists af krossinum. Gengið út í þögninni.
Upprisuhátíð í Akureyrarkirkju hefst með hátíðarmessu kl. 8.00 á páskadag. Kór Akureyrarkirkju og Stúlknakórinn
leiða kröftugan söng. Opið hús með morgunverðarborði og páskahlátri í Safnaðarheimilinu kl. 9.00-11.00
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Barnakór Akureyrarkirkju syngur. Mikill söngur, biblíubrúður og leikrit. Skemmtileg samvera fyrir alla
fjölskylduna. Á annan í páskum verður hátíðarguðsþjónusta í Minjasafnskirkjunni í innbænum á Akureyri kl.
17.00. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Allir velkomnir.