Fjölbreytt dagskrá í Akureyrarkirkju um páskana

Fjölbreytt dagskrá er framundan í Akureyrarkirkju í páskavikunni. Á skírdag, 20. mars, verður kyrrðarstund kl. 12.00, fyrirbænir og altarisganga. Kvöldmessa verður kl. 20.00. Endurminning síðustu kvöldmáltíðarinnar. Heimagert altarisbrauð. Forsöngvari: Eyþór Ingi Jónsson. Á föstudaginn langa, 21. mars, hefst lestur Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar kl. 13.00. Lesarar eru landskunnir leikarar ásamt leikmönnum. Blokkflautuleikarar úr Tónlistarskólanum á Akureyri annast tónlist á heilu tímunum. Molasopi í anddyri kirkjunnar. Hægt að koma og fara að vild. Kyrrðarstund við krossinn kl. 21.00. Áhrifamikil samvera með söng og lestri úr píslarsögunni. Þráinn Karlsson leikari les sjö orð Krists af krossinum. Gengið út í þögninni. Upprisuhátíð í Akureyrarkirkju hefst með hátíðarmessu kl. 8.00 á páskadag. Kór Akureyrarkirkju og Stúlknakórinn leiða kröftugan söng. Opið hús með morgunverðarborði og páskahlátri í Safnaðarheimilinu kl. 9.00-11.00 Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Barnakór Akureyrarkirkju syngur. Mikill söngur, biblíubrúður og leikrit. Skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna. Á annan í páskum verður hátíðarguðsþjónusta í Minjasafnskirkjunni í innbænum á Akureyri kl. 17.00. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Allir velkomnir.

Nýjast