03. janúar, 2009 - 21:31
Fréttir
Fimm manns eru í einangrun á Sjúkrahúsinu á Akureyri, FSA, vegna pestar sem herjar á bæjarbúa. Guðjón Kristjánsson,
sérfræðingur á lyfjadeild sjúkrahússins segir pestina bráðsmitandi. Svokölluð Nóróveira hefur herjað á Akureyringa
í desembermánuði. Einkennin eru uppköst og niðurgangur, fólk er þungt haldið og slær niður aftur.
Á lyfjadeild Sjúkrahússins Akureyri eru fimm manns í einangrun vegna pestarinnar og kapp lagt á að koma í veg fyrir að aðrir sjúklingar
deildarinnar smitist. Hvorki á Landspítalanum né á Læknavaktinni í Reykjavík kannaðist starfsfólk við að upp- og niðurgangur
gerðu fólki á höfuðborgarsvæðinu lífið leit. Þetta kemur fram á vef RÚV.