Félagi í VG skrifar opið bréf til Steingríms J.

Guðbergur Egill Eyjólfsson bóndi í Hléskógum í Grýtubakkahreppi og félagi í VG, skrifar opið bréf til Steingríms J. Sigfússonar, þar sem nú líti út fyrir að hann  og nokkrir þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs ætli að greiða götu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu. "Hvernig má það vera að eftir á allt sem undan er gengið og skýra stefnu flokksins í þessum málaflokki ætlir þú, Stengrímur J. Sigfússon, að styðja frumvarp um aðildarumsókn Ísland að Evrópusambandinu," spyr Guðbergur í grein sinni.  

Guðbergur segist hafa rætt við marga innan hreyfingarinnar "og ekki enn fundið neinn sem er sammála þeirri leið sem þú og meiri hluti þingmanna okkar ætlar að fara." Hann bendir jafnframt á að undir bréfið skrifi einnig nokkrir af félögum VG úr Norðausturkjördæmi, "til þess að þú vonandi skynjir hug félaga þinna og kjósenda sem á engann hátt skildu þig á þann veg í aðdraganda kosninganna að þú myndir segja já við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu." Bréfið er birt í heild á vef Vikudags, undir Aðsendar greinar.

Nýjast