Guðbergur segist hafa rætt við marga innan hreyfingarinnar "og ekki enn fundið neinn sem er sammála þeirri leið sem þú og meiri hluti þingmanna okkar ætlar að fara." Hann bendir jafnframt á að undir bréfið skrifi einnig nokkrir af félögum VG úr Norðausturkjördæmi, "til þess að þú vonandi skynjir hug félaga þinna og kjósenda sem á engann hátt skildu þig á þann veg í aðdraganda kosninganna að þú myndir segja já við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu." Bréfið er birt í heild á vef Vikudags, undir Aðsendar greinar.