09. júní, 2008 - 11:34
Fréttir
Eitt tilboð barst í gerð knattspyrnu- og frjálsíþróttasvæðis á íþróttasvæði Þórs. Um er að
ræða jarðvinnu, lagnir, þökulögn, malbikun og frágang hlaupabrauta.
Tilboðið var frá G. Hjálmarssyni og hljóðaði upp á 299 milljónir króna eða 47% yfir kostnaðaráætlun sem var
203 milljónir króna. Á dögunum barst einnig eitt tilboð þegar boðið var út verk á svonefndu Sunnuhlíðarsvæði,
það var 202% yfir áætluðum kostnaði og hafnaði Akureyrarbær því tilboði. Þá liggur fyrir að bjóða út
byggingu stúku við Þórsvöllinn, sem rúma á 1000 áhorfendur.