Eyjafjarðará er á uppleið og seiðabúskapur að ná sér

„Við erum bara mjög bjartsýn á sumarið," segir Ágúst Ásgrímsson formaður Veiðifélags Eyjafjarðarár og telur að áin sé á uppleið.  Á síðastliðinu ári veiddust um 1000 fiskar í Eyjafjarðará, sem er mun meira en var árið 2007, þegar um 700 fiskar veiddust í ánni.  Þá er seiðabúskapur á uppleið á svæðum 1 og 2, en hann hrundi gersamlega í kjölfar flóðanna sem urðu í desember 2006 þegar Djúpadalsvirkjun gaf sig.  

Ágúst segir að niðurstöður hvað seiðastofna varðar séu í heildina mjög góðar, sérstaklega á efri svæðum Eyjafjarðarár og sé nú að jafna sig eftir áfallið í kjölfar flóðanna miklu.  Þá nefnir hann einnig að minkaveiðiátak sem staðið hefur yfir frá árinu 2007 skipti gríðarlega miklu máli fyrir verndun bleikjunnar.  „Við fórum í vettvangskönnun í október í fyrra og þá sáum við seiði í öllum pollum og bleikjur á öllum breiðum klárar til hrygningar," segir Ágúst.

Merkingar á bleikju stóðu yfir síðastliðið sumar og þeim verður haldið áfram á komandi sumri.  Slöngumerki er stungið í fiskinn með nálarbyssu þétt við miðjan bakuggann.  Þá er bleikjan lengdarmæld í vatnsborðinu og síðan sleppt aftur í ánna.  Um 200 bleikjur voru merktar í fyrra.  „Það kemur svo í ljós í sumar með veiðum á merktri bleikju hversu mikið hún hefur stækkað og einnig hvort hún haldi sig á sömu slóðum og áður.  Við munum líka í sumar merkja bleikju með staðsetningarbúnaði þannig að hægt verði að fylgjast með ferðum þeirra," segir Ágúst.  Þeir veiðimenn sem ná merktum fiskum í sjó eru beðnir um að lengdarmæla hann og skrá niður númer þannig að rannsóknir skili sem bestum árangri.

Á aðalfundi Veiðifélags Eyjafjarðarár á dögunum var samþykkt að lækka verð veiðileyfa nú í kreppunni og þá er leyfilegt að hirða einn fisk í soðið á vaktinni á stöngina en slíkt var bannað í fyrra.  Spúnaveiði á svæðum 1, 2 og 3 er einnig leyfð að nýju og með því er að sögn Ágústs komið til móts við yngstu meðlimi fjölskyldunnar.  Loks má nú veiða allann daginn á svæði 5 í ágústmánuði.

Nýjast