Ágúst segir að niðurstöður hvað seiðastofna varðar séu í heildina mjög góðar, sérstaklega á efri svæðum Eyjafjarðarár og sé nú að jafna sig eftir áfallið í kjölfar flóðanna miklu. Þá nefnir hann einnig að minkaveiðiátak sem staðið hefur yfir frá árinu 2007 skipti gríðarlega miklu máli fyrir verndun bleikjunnar. „Við fórum í vettvangskönnun í október í fyrra og þá sáum við seiði í öllum pollum og bleikjur á öllum breiðum klárar til hrygningar," segir Ágúst.
Merkingar á bleikju stóðu yfir síðastliðið sumar og þeim verður haldið áfram á komandi sumri. Slöngumerki er stungið í fiskinn með nálarbyssu þétt við miðjan bakuggann. Þá er bleikjan lengdarmæld í vatnsborðinu og síðan sleppt aftur í ánna. Um 200 bleikjur voru merktar í fyrra. „Það kemur svo í ljós í sumar með veiðum á merktri bleikju hversu mikið hún hefur stækkað og einnig hvort hún haldi sig á sömu slóðum og áður. Við munum líka í sumar merkja bleikju með staðsetningarbúnaði þannig að hægt verði að fylgjast með ferðum þeirra," segir Ágúst. Þeir veiðimenn sem ná merktum fiskum í sjó eru beðnir um að lengdarmæla hann og skrá niður númer þannig að rannsóknir skili sem bestum árangri.
Á aðalfundi Veiðifélags Eyjafjarðarár á dögunum var samþykkt að lækka verð veiðileyfa nú í kreppunni og þá er leyfilegt að hirða einn fisk í soðið á vaktinni á stöngina en slíkt var bannað í fyrra. Spúnaveiði á svæðum 1, 2 og 3 er einnig leyfð að nýju og með því er að sögn Ágústs komið til móts við yngstu meðlimi fjölskyldunnar. Loks má nú veiða allann daginn á svæði 5 í ágústmánuði.