Engin jarðgöng frá stríðsárunum undir Akureyri

Á vef Vikudags í gær, 1. apríl, var sagt frá því að Hörður Geirsson safnvörður á Minjasafninu á Akureyri hefði komist yfir gögn frá hermálaráðuneyti Bretlands sem sýndu að breska setuliðið hafi unnið við jarðgangagerð undir Akureyri á stríðsárunum. Jafnframt var sagt frá því að Hörður ætlaði að bjóða bæjarbúum í söguskoðum um göngin seinni partinn í gær, 1. apríl. Margir bæjarbúar sýndu því áhuga að skoða þessi merku göng og mættu við jarðhýsið við Réttarhvamm en því miður var aðeins um aprílgabb að ræða.  

Í fréttinni í gær var sagt frá því að inngangan í þessi meintu jarðgöng væri í gegnum  jarðhýsið. Í miðjum göngunum átti að vera stórt rými þar sem Bretar höfðu útbúið stjórnstöð með fullkomnum fjarskiptatækjum þess tíma. Einnig áttu vera þarna matvæli, súkkulaði, vopnabúr og kort af Íslandi, sem inná voru merktir tveir áður óþekktir flugvellir. Hörður Geirsson var þátttakandi í aprílgabbinu, sem og Ragnar Hólm kynningarfulltrúi Akureyrarbæjar, sem í fréttinni í gær líkti þessum fundi við gullæð. Það er von Vikudags að þessi frétt hafi vakið verðskuldaða athygli en jafnframt að þeir sem hlupu 1. apríl, erfi það ekki við starfsfólk blaðsins að hafa verið gabbaðir.

Nýjast