Gunnlaugur nefnir að flutningamálin séu sér kapítuli og geri fyrirtækjum á landsbyggðinni sérstaklega erfitt fyrir. Megi þá hækkun rekja til offjárfestinga erlendis, sígandi gengis krónunnar og hækkandi olíuverðs. Þessi þróun er farin að hafa veruleg áhgrif á þau fyrirtæki sem starfa á landsbyggðinni. Benti Gunnlaugur á að Kjarnafæði hefði á liðnum árum komið að uppbyggingu starfsstöva með heimamönnum víðsvegar á landsbyggðinni. Má þar nefna Vopnafjörð þar sem Sláturfélag Vopnafjarðar starfar, Blönduós þar sem SHA-afurðir starfar, Akureyri og Svalbarðseyri auk þess sem fyrirtækið er með starfsemi á Akranesi.
"Það hafa orðið gríðarlegar hækkanir á flutningum á liðnum mánuðum. Ef við umreiknum þessa hækkun flutningskostnaðar milli starfsstöðva, að aðalmarkaði sem er höfuðborgarsvæðið, þar sem um 80% okkar markaðar er, yfir í leiguverð á iðnaðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, kemur í ljós að við gætum leigt fullnægjandi húsnæði á besta stað í Reykjavík. Ef fram fer sem horfir er það því miður ekki spurning hvort heldur hvenær við og fleiri framleiðlsufyrirtæki neyðumst til að flytja okkar starfsemi alfarið á höfuðborgarsvæðið," segir Gunnlaugur Eiðsson í Kjarnafæði.