Ekki gert ráð fyrir hækkun til menningarmála á Akureyri

Ekki er gert ráð fyrir hækkun á framlagi menntamálaráðuneytisins til menningarmála á Akureyri í fjárlögum fyrir árið 2009, í samræmi við samning bæjarins og ráðuneytisins frá 3. janúar 2007. Framlagið verður óbreytt frá árinu 2008, 120 milljónir króna, í stað 130 milljóna króna eins og samningurinn segir til um.

Málið var til umfjöllunar á síðasta fundi stjórnar Akureyrarstofu. Þar kom fram að ljóst væri að þessi niðurstaða hefði samsvarandi áhrif á fjárhagsáætlunargerð Akureyrarbæjar. Einnig var á fundinum farið yfir breytingar á fjárhagsáætlun bæjarins á milli umræðna í bæjarstjórn.  Lækka á kostnað vegna yfirvinnu og bregðast þarf við því að framlag menntamálaráðuneytisins er 10 milljónum króna lægra en samningur gerir ráð fyrir.

Nýjast