Fjárhagsrammi Sjúkrahússins á Akureyri á árinu 2009 verður þrengri en á yfirstandandi ári sem nemur 250-300 milljónum króna, segir í fréttatilkynningu. Ýmsar breytingar verða í starfsmannahaldi sjúkrahússins, ýmist með því að ekki er ráðið í störf sem losna, stöðuhlutföll breytast eða með fækkun starfa. Þessar breytingar munu tengjast rúmlega 40 starfsmönnum í liðlega 20 stöðugildum en heildar starfsmannafjöldi sjúkrahússins er um 650 manns í um 450 stöðugildum. Auk framangreindra atriða hefur áður verið tekin ákvörðun um að hætta rekstri hjúkrunardeildar í Seli og flytja þá sjúklinga á endurhæfingardeild og öldrunarlækningadeild í Kristnesi. Stefnt er að því að gerð starfsemis- og rekstraráætlunar fyrir sjúkrahúsið í heild verði að fullu lokið um miðjan janúar n.k. Þar er haft að leiðarljósi að tryggja áfram góða og fjölbreytta þjónustu.