Búnaðarsögusafn Eyjafjarðar í Eyjafjarðarsveit?

Menningarmálanefnd Eyjafjarðarsveitar samþykkti á síðasta fundi sínum að leggja til við sveitarstjórn að skipaður verði þriggja manna vinnuhópur í þeim tilgangi að vinna að safnamálum sveitarinnar og þá sérstaklega að stofnun búnaðarsögusafns Eyjafjarðar.  

Menningarmálanefnd lagði til að sveitastjórn skipaði tvo menn í þennan vinnuhóp og mennngarmálanefnd einn. Málið var til umfjöllunar á síðasta fundi sveitarstjórnar og þar var samþykkt að fela menningarmálanefnd að útfæra erindisbréf fyrir vinnuhóp um safnamál.

Nýjast