Bæjarráð fagnar því að lagning Blöndulínu 3 er að komast á framkvæmdastig

Bæjarráð Akureyrar fagnar því að lagning Blöndulínu 3 er nú að komast á framkvæmdastig en leggur jafnframt áherslu á að sjónræn áhrif af framkvæmdinni verði lágmörkuð eins og kostur er.  

Málið var til umfjöllunar í bæjarráði í gær og bendir ráðið jafnframt á að styrking raforkuflutningskerfisins til Akureyrar og Eyjafjarðar sé ein af forsendum vaxtar og fjölbreytts atvinnulífs á svæðinu.

Nýjast