18. febrúar, 2008 - 10:29
Fréttir
Bílaklúbbur Akureyrar hefur sent framkvæmdaráði erindi, þar sem sem óskað er eftir að ráðið skoði aðkomu sína að
uppbyggingu og undirbúningi að fyrirhuguðu ökugerði og akstursíþróttasvæði félagsins. Einnig er óskað eftir því
að settur verði á fót vinnuhópur á vegum bæjarins og Bílaklúbbsins svo hægt sé að fara yfir næstu skref varðandi
þá vinnu sem framkvæma þarf á staðnum eins fljótt og mögulegt er. Framkvæmdaráð hefur falið deildarstjóra
framkvæmdadeildar að meta þær landmótunarframkvæmdir sem nauðsynlegar eru á svæðinu og ræða við leigutaka
námuréttinda um þátttöku hans í því verkefni.