Atvinnulausir á Akureyri fá frítt í sund

Íþróttaráð hefur samþykkt að veita Akureyringum sem skráðir eru að fullu sem atvinnuleitendur, frían aðgang í sundlaugar Akureyrarbæjar. Tilboð þetta gildir alla virka daga frá kl. 09:00 til 14:00 tímabilið 1. mars til 15. maí 2009. Hugmyndin um að bjóða atvinnulausum frítt í sund kom frá ASÍ.  

Jónatan Magnússon starfsmaður átaksverkefnisins Hreyfing og útivist á Akureyri, mætti einnig á fund íþróttaráðs og kynnti stöðu þess. Íþróttaráð fagnar því hversu vel verkefnið hefur gengið.

Nýjast