Atvinnuátaksverkefni til skoðunar á Svalbarðsströnd

Árni Bjarnason sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi segir að til skoðunar sé á vegum hreppsins hvort unnt verði að setja í gang atvinnuátaksverkefni.  Um nýliðin mánaðamót voru 5 íbúar hreppsins á atvinnuleysisskrá og segir Árni að þeim hafi eitthvað fjölgað nú í marsmánuði.   

Atvinnuleysi meðal íbúa hreppsins var óþekkt fyrir bankahrun í október síðastliðnum. "Við erum aðskoða hvaða möguleikar eru uppi í stöðunni og þá helst hvort unnt verði að koma af stað einhvers konar átaksverkefnum á sviði umhverfismála," segir Árni.  Hann segir að staðan hjá stærsta vinnuveitanda hreppsins, Kjarnafæði sé óbreytt eftir því sem hann best vissi og hið sama megi segi í opinbera geiranum.  Einkum er það ungt fólk í hreppnum sem er án atvinnu nú.

Nýjast