Árni Þór Sigtryggsson, leikmaður Akureyrar Handboltafélags, var í gær valinn í æfingahóp íslenska karlalandsliðsins
í handbolta fyrir leikina sem framundan eru hjá landsliðinu í undanriðli EM. Árni er óðum að ná sínum fyrri styrk eftir
axlaðgerð sem hann fór í sl. vetur. Þetta er frábær árangur hjá Árna og ekki síst frábært fyrir handboltann á
Akureyri.
Nýtt fagráð um líknarþjónustu hefur verið skipað til þriggja ára í samstarfi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og Heilsuverndar (HV). Markmið ráðsins er að efla samvinnu heilbrigðisstofnana og styrkja líknarþjónustu á Norðurlandi.
„Við vonumst til þess að útboðsgögn verði klár um komandi mánaðamót og stefnu að því að auglýsa útboð og í framhaldinu helst að hefja framkvæmdir eins fljótt og raunhæfur möguleiki er á einhvern tíma á þessu ári,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson fr...
Stjórn Hafnasamlags Norðurlands hefur óskað eftir heimild til að nýta erfir hæðir mannvirkja á Torfunefi til reksturs gistirýma/hótels. Skipulagsráð Akureyrar telur rétt að fylgja gildandi deiliskipulagi og ráðast ekki í breytingar sem fela í sér aukið byggingarmagn eða heimild til að uppbyggingar gistirýmis.
Hollvinir Sjúkrahúsins á Akureyri gera það svo sannarlega ekki endasleppt, fyrir nokkrum dögum færðu samtökin lyflækningadeild minnningargjöf og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.
Árlegur fundur ungmennaráðs Akureyrarbæjar og bæjarstjórnar fór fram í Ráðhúsinu þriðjudaginn 17. mars. Á fundinum komu fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar um málefni sem varða börn og ungmenni í bænum.
Full ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af framtíð áætlunar- og sjúkraflugs um Húsavíkurflugvöll. Eins og kunnugt er liggur áætlunarflug niðri um Húsavíkurflugvöll um þessar mundir sem er miður.
Fjölmennur aðalfundur Eldri borgara á Akureyri (EBAK) fór fram i gær. Á fundinum var borin upp og samþykkt ályktun til þeirra framboða sem bjóða fram lista í komandi bæjarstjórnarkosningum þann 16 maí n.k.