Akureyringar færa Rafeyri þakkir fyrir hjartað í Vaðlaheiðinni

Það er ekki ofsögum sagt að hjartað sem "slegið" hefur í Vaðlaheiðinni í vetur, hafi vakið verðskuldaða athygli. Það voru starfsmenn Rafeyrar sem ákváðu í lok nóvember á síðasta ári, að setja hjartað upp en það er á stærð við fótboltavöll. Kveikjan að þessu skemmtilega framtaki var samvinnuverkefni Ásprents-Stíls og Akureyrarstofu þar sem fólk var hvatt til að "Brosa með hjartanu."

Hjartað hefur slegið daglega frá því klukkan 17.00 laugardaginn 23. nóvember 2008  en þá höfðu starfsmenn Rafeyrar lagt mjög mikla vinnu á sig við að reikna út GPS punkta og koma fyrir mörg hundrað metra langri rafmagnsleiðslu, staurum og fjöldanum öllum af ljósaperum svo að þetta gæti orðið að veruleika.  Til að þakka starfsmönnum Rafeyrar fyrir þetta frábæra framtak sem hefur hlýjað mörgum um hjartarætur ætla bæjarbúar á Akureyri að fjölmenna við Minjasafnið á Akureyri á sumardaginn fyrsta þar sem börn, unglingar, foreldrar, ömmu og afar og allir sem vettlingi geta valdið munu mynda hjarta á flötinni fyrir framan safnið.  Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri  er ein þeirra sem tekur þátt í að búa til hjartað og mun einnig færa Rafeyrarmönnum gjöf fulla af hjartans þökkum sem bæjarbúar geta tekið þátt í að skapa á staðnum.
 
Fólk er hvatt til að fjölmenna á Minjasafnið, taka þátt í barnaskemmtun safnsins sem haldin er samkvæmt venju á sumardaginn fyrsta og stendur frá klukkan 14-16  og síðast en ekki síst að vera mætt klukkan 14.30 til að taka þátt í að færa starfsmönnum Rafeyrar hjartans þakkir með þessum skemmtilega gjörningi.

Nýjast