Akstursíþróttasvæði BA ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Umhverfisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 5. júní 2008 um að akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar í Glerárdal sé ekki líklegt til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.  

Um er að ræða úrskurð Umhverfisráðuneytisins varðandi stjórnsýslukæru frá Hestamannafélaginu Létti á Akureyri vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar í Glerárdal skuli ekki sæta mati á umhverfisáhrifum.

Nýjast