Áhersla á vetrarflug til að jafna árstíðasveiflur

Voigt Travel/Transavia er með nokkur flug á áætlun, tvisvar í viku fram til 10. Mars.
Voigt Travel/Transavia er með nokkur flug á áætlun, tvisvar í viku fram til 10. Mars.

„Farþegarnir sem koma hingað að vetri eru að leita að ævintýrum og náttúru yfir vetrartímann. Þeir sækja hingað til að sjá norðurljósin, prófa böðin okkar og fara í jeppaferðir, sleðaferðir, hundasleða, heimsækja söfn og sýningar og gönguferðir svo eitthvað sé nefnt,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. . „Við leggjum mesta áherslu á vetrarflugin, en þannig getum við lagfært árstíðarsveiflu sem við búum enn þá við hér á svæðinu.“

 Arnheiður segir margt fram undan í ferðaþjónustu norðan heiða. Auk þess sem flug á vegum heimafélagsins Niceair sé í boði eru þrjú erlend flugfélög með beint flug á Akureyrarflugvöll í ár og segir hún meira fram undan í þeim efnum

Fyrsta vetrarflug Voigt Travel/Transavia var í liðinni viku frá  Amsterdam. Félagið er með 9 flug á áætlun, tvisvar í viku fram til 10. mars. Voigt Travel hefur flogið beint til Akureyrar yfir vetrartímann frá árinu 2019 og þá frá Amsterdam, en í sumar býður félagið að auki upp á flug frá Rotterdam. Alls verða 13 flug þaðan í sumar, á tímabilinu frá júní til ágúst.

Í ár er von á 6-700 flugferðum um Akureyrarflugvöll sem koma í beinu flugi frá 8 til 10 áfangastöðum Gera má ráð fyrir að farþegar sem komi beint til Akureyrar verði á bilinu 40 til 50 þúsund talsins.

Condor og Niceair verða með áætlunarflug og Voigt og Edelweiss eru með tímabundin leiguflug. Condor hefur boðað 24 flug frá miðjum maí og fram í lok október og er flogið frá Frankfurt. Edelweiss flýgur frá Zurich, alls 7 flug í júlí og ágúst.

 Nánast allir ánægðir með heimsókn á Norðurland

 Farþegar sem koma yfir veturinn eru margir í skipulögðum ferðum og segir hún ferðaskipuleggjendur á svæðinu mjög vana því að sinna farþegum í hvaða veðri sem er, „og breyta áætlunum eftir þörfum til að tryggja góða upplifun gestanna.“ Þó farþegar lendi á Akureyri og ferðist um svæðið í kring fari sumir hverjir í lengri ferðir, jafnvel um Austurland og Suðurland.

 „Þessi fjöldi sem kemur í beinu flugi er mikil lyftistöng fyrir svæðið hérna og kallar á mikinn undirbúning og skipulag,“ segir Arnheiður. Mikil vinna sé hafin við vöruþróun og markaðssetningu fyrir allt það svæði sem hefur ávinning af beinu flugi, alveg frá Hrútafirði og austur á land. „Samstarf fyrirtækjanna skiptir öllu máli í uppbyggingu á nýjum áfangastað og hefur það sýnt sig að þannig náum við bestum árangri fyrir svæðið og fyrir gestina okkar en 97% þeirra fara héðan ánægðir með heimsóknina á Norðurland.  

 

 


Athugasemdir

Nýjast