Á tímum óvissu og upplausnar eru breytingar á heilbrigðiskerfi viðkvæmar

"Á tímum óvissu og upplausnar í íslensku þjóðfélagi eru breytingar á heilbrigðiskerfi afar viðkvæmar. Það hlýtur að segja sig sjálft að þegar reynir á samstöðu þjóðar að leysa úr stórum vanda sé sérstaklega gætt að hópum eins og ungmennum og öldruðum," segir í ályktun frá Foreldrafélagi VMA vegna breytinga á starfsemi geðdeildar FSA.  

Ennfremur segir í ályktuninni: "Það má vera ljóst að framundan er aukið atvinnuleysi  og öryggi margra ógnað vegna þess.  Ungmenni fara ekki varhluta af því, ýmist missa vinnu sjálf eða upplifa atvinnumissi foreldra, nema að hvorutveggja verði. Við verðum að vona að stærri hluti íslenskra ungmenna séu hamingjusöm og úrræðagóð en við vitum jafnframt að sá hópur er til sem glímir við mikla vanlíðan sem á sér margvíslegar orsakir.  Því lítum við svo á að breytingar þær sem eiga sér stað á starfsemi geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri, bæði skert staða eina barna- og unglingageðlæknis landsbyggðarinnar og töluvert skert starfsemi dagdeildar geðþjónustunnar, séu í hróplegu ósamræmi við þá tíma sem framundan eru. Ákvarðanir af þessu tagi sýna fádæma lítilsvirðingu og skilningsleysi og við mótmælum þeim harðlega."

Nýjast