03. júní, 2008 - 15:17
Fréttir
Á morgun miðvikudag, eru liðin 80 ár frá fyrsta farþegafluginu milli Reykjavíkur og Akureyrar en þann 4. júní 1928 lenti
þýsk Junkers flugvél á Pollinum.
Flugvélin hafði viðkomu á Ísafirði og Siglufirði á leið sinni frá Reykjavík. Í tilefni þessara tímamóta
verður opnuð sérstök sýning á Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli á morgun, miðvikudaginn 4. júní. Það var
Flugfélag Íslands númer 2 sem stóð fyrir þessari ferð en það félag var stofnað árið 1928 og starfaði fram á
árið 1931. Flugfélag Íslands númer eitt var hins vegar stofnað árið 1919 og starfaði í tæp 2 ár.