Útblástur af völdum skemmtiferðaskipta í miðbæ Akureyrar var á fyrstu 6 mánuðum þessa árs mjög lítil og vart merkjanlegur, ef frá eru taldir örfáir toppar sem allir reyndust þó undir heilsuverndarmörkum. Þetta kemur fram í minnisblaði sem EFLA hefur tekið saman um niðurstöðu loftgæðamælinga Umhverfisstofnunar, sem unnin var að beiðni Péturs Ólafssonar hafnarstjóra hjá Hafnasamlagi Norðurlands í tengslum við umfjöllun og umræður í samfélaginu um mengun frá skemmtiferðaskipum. „Ég fagna því að hafa í höndum mat fagaðila um þetta mál,“ segir Pétur.
Sjálfvirkur mælir Umhverfisstofnunar á Akureyri er staðsettur við menningarhúsið Hof við Strandgötu, á milli hafnarinnar og miðbæjar Akureyrar, hann er í um tveggja metra hæð frá jörðu og annast símælingu á svifryki, brennisteinsdíoxíði, niturmónoxíði og niturdíoxíði. Niðurstöður mælinga í rauntíma má sjá á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Sólarhringsmeðaltal svifryks hefur níu sinnum farið yfir heilsuverndarmörk frá því í febrúar síðastliðnum, seinast þann 12. apríl „og því ekki hægt að tengja þessa sérstöku háu toppa, þar sem sólarhringssvifryksstyrkur hefur farið yfir viðmiðunarmörk svifryks í miðbæ Akureyrar, við útblástur frá skemmtiferðaskipum,“ segir í minniblaði Eflu. Meðalsólarhringsstyrkur svifryks í maí, júní og júlí eftir að komur skemmtiferðaskipa hófust er umtalsvert lægri en í febrúar, mars og apríl.
Vindur gæti hafa þyrlað upp svifryki
Klukkustundargildi gefa betri mynd af mengun frá skemmtiferðaskipum, segir í minnisblaðinu en hæsta klukkustundarmeðaltal svifryks var þann 6. maí. Ekkert skemmtiferðaskip var í höfn þann dag. Dagana 5. og 6. maí, ásamt 20. maí mældist mikið svifryk í miðbænum, en það voru vindasamir dagar og líklegt að vindur hafi þyrlað upp ryki sem orsakaði há mæligildi. Bent er á að fjögur skemmtiferðaskip voru í höfn 5. júlí en hæsta klukkustundargildi svifryks var ekki ýkja hátt þann dag. Það þykir benda til að svifryksmengun í miðbæ Akureyrar eigi ekki uppruna sinn í útblæstri skemmtiferðaskipa.
Veðurfari hefur töluverð áhrif á hversu mikil mengun mælist hveru sinni
Styrkur niturdíoxíðs hefur aldrei farið yfir heilsuverndarmörk á tímabilinu, fyrstu 6 mánuðum ársins og er vel undir þeim mörkum allt tímabilið og er getum að því leitt að veðurfar hafi töluverð áhrif á hversu mikil mengun mælist hverju sinni.
Styrkur brennisteinsdíoxíðs hefur verið mjög lítill og stöðugur á tímabilinu og aldrei verið nálægt því að fara yfir heilsuverndarmörk. Lítill toppur mældist þó þann 23. júní þegar hæsta klukkustundarmeðaltal fór upp í 22,8 μg/m3. Þann dag var í höfn skemmtiferðaskip sem var smíðað árið 1972 og gæti gamall vélbúnaður og hönnun mögulega hafa orsakað þennan topp, sem þó var langt undir heilsuverndarmörkum