Skautafélag Akureyrar hafði betur gegn Skautafélagi Reykjavíkur, 5:4, er liðin mættust í kvöld í Skautahöllinni
í Laugardal á Íslandsmótinu í íshokkí karla. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 4:4, og því þurfti
að framlengja leikinn. Þar reyndist Stefán Hrafnsson hetja SA er hann tryggði SA sigurinn með svokölluðu „gullmarki” þegar rétt ein
mínúta var liðin af framlengingunni. SA hefur þar með minnkað forskot SR á toppi deildarinnar niður í fimm stig, en SR hefur 19 stig á
toppnum en SA 14 stig í öðru sæti deildarinnar en á leik til góða.
Árlegur fundur ungmennaráðs Akureyrarbæjar og bæjarstjórnar fór fram í Ráðhúsinu þriðjudaginn 17. mars. Á fundinum komu fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar um málefni sem varða börn og ungmenni í bænum.
Full ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af framtíð áætlunar- og sjúkraflugs um Húsavíkurflugvöll. Eins og kunnugt er liggur áætlunarflug niðri um Húsavíkurflugvöll um þessar mundir sem er miður.
Fjölmennur aðalfundur Eldri borgara á Akureyri (EBAK) fór fram i gær. Á fundinum var borin upp og samþykkt ályktun til þeirra framboða sem bjóða fram lista í komandi bæjarstjórnarkosningum þann 16 maí n.k.
15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi.
Sprettur-Inn, í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, hefur hrundið af stað nýju samfélagsverkefni undir yfirskriftinni „Sneið fyrir samfélagið“.