Ósáttur við launahækkun

Björn Sbæbjörnsson/mynd Karl Eskil
Björn Sbæbjörnsson/mynd Karl Eskil

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs samþykkti að hækka laun stjórnarmanna úr 42 þúsund kr. í 80 þúsund kr. á mánuði. Stjórnarformaðurinn er með tvöföld laun almennra stjórnarmanna, þannig eftir þessar breytingar eru laun stjórnarformanns 160 þúsund krónur á mánuði.

Björn Snæbjörnsson formaður Einingar- Iðju var kjörinn formaður stjórnar. Hann segist ekki vera sáttur við þessar hækkanir.

„Laun stjórnarmanna voru lækkuð um samtals 15% á árunum 2008 og 2009. Fulltrúar launþega á ársfundinum lögu til að stjórnarlaunin yrðu hækkuð í 60 þúsund krónur, sem þýðir að lækkunin hefði verið dregin til baka, auk þess sem launin hefðu hækkað miðað við almenna þróun á vinnumarkaði. Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins lögðu hins vegar til að hækka launin í 80 krónur og sú tillaga var samþykkt með 56% atkvæða í leynilegri kosningu.“

 

Launin hærri annars staðar

 

„Ég stóð að tillögunni um að hækka stjórnarlaunin upp í 60 þúsund, en þetta var niðurstaða árafundarins. Svo verðum við bara að sjá til hvað gerist á næsta ársfundi. Ég bendi á að laun stjórnarmanna í öðrum sambærilegum lífeyrissjóðum eru almennt hærri, en engu að síður hugnast mér ekki þessi samþykkt. Ég hefði talið betra að samþykkja tillögu fulltrúa launþega.“

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast