Öðruvísi grín í Framtýð Íslands

Sýningin er byggð á vinsælum grínfyrirlestrum Jóels Sæmundssonar
Sýningin er byggð á vinsælum grínfyrirlestrum Jóels Sæmundssonar

FramtÝð Íslands er heiti á sýningu sem verður á Múlabergi, Akureyri annað kvöld, föstudagskvöldið 16. október Klukkan 20.

Sýningin er byggð á vinsælum grínfyrirlestrum Jóels Sæmundssonar sem hafa farið eins og eldur í sinu um fyrirtæki landsins og selst í yfir 300 skipti. Þótt margir kunni að hafa séð fyrirlestrana eða myndbönd frá honum á samfélagsmiðlum er hér um glænýja upplifun að ræða; sýning sem sameinar óvænta hluti, grín og góða skemmtun.

Jóel segir að um sé að ræða grínsýningu sem er algjörlega öðruvísi en fólk á að venjast – ekki hefðbundið uppistand, leikrit eða spunasýning heldur nýstárleg blanda þar sem áhorfendur skemmta sér konunglega og vita aldrei hvað gerist næst.

„Á sýningunni er tekið á stórum spurningum: Hvernig lítur framtíðin út, hvaðan komum við, hvert erum við að fara – og hver eiginlega tók skóna hjá barnabarni Ingu Sæland?,“ segir Jóel og eflaust fýsir marga að fá svör við þeim brýnu spurningum. Vinsældir sýningarinnar hafa vakið athygli og hafa margir gestir kosið að mæta aftur og aftur.

„Miðasala fyrir sýninguna á Akureyri er á vefsíðu Jóels. Þeir sem vilja upplifa kvöld fullt af óvæntum uppákomum og hlátri ættu að tryggja sér miða í tæka tíð.“+

Nýjast