Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að framlög ríkisins til Sjúkrahússins á Akureyri verði 4.639 milljónir króna, sem er 170 milljóna króna hækkun frá fyrra ári. Í skýringum með frumvarpinu segir að hækkunin skýrist alfarið af launa- og verðlagsbótum. Bjarni Jónasson forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að þessar tölur komi lítið á óvart.
Það var búið að gefa út að niðurskurðinum væri lokið og mér sýnist að það standist. Það má segja að framlög frá ríkissjóði verði óbreytt á næsta ári, það eru góðu fréttirnar. Hins vegar hefur starfsemi stofnunarinnar aukist nokkuð á þessu ári, með þeim afleiðingum að á fyrstu sjö mánuðum ársins var tap af rekstrinum 44 milljónir króna. Í ljósi þess að ekki er gert ráð fyrir auknum fjárveitingum frá ríkissjóði verðum við því að bregðast við hallarekstrinum." NÁNAR ER RÆTT VIÐ BJARNA JÓNASSON Í PRENTÚTGÁFU VIKUDAGS, SEM KEMUR ÚT Í DAG.
karleskil@vikudagur.is