Enn boðað til mótmæla á Ráðhústorgi

Myndin er tekin á mótmælunum á Ráðhústorgi 4. apríl s.l /mynd:eipi
Myndin er tekin á mótmælunum á Ráðhústorgi 4. apríl s.l /mynd:eipi

Boðað hefur verið til mótmæla öðru sinni á Ráðhústorgi á Akureyri í dag klukkan 17. Þetta kemur fram á Facebook síðu undir heitinu „Kosningar STRAX“. Á síðunni segir: „Við krefjumst þess að ríkisstjórnin segi af sér STRAX og efnt verði til kosninga. Ekki sé forsvaranlegt að lappa upp á fallna stjórn. Í mínu ungdæmi hefði síðasta hrókering stjórnarinnar verið nefnd SKÍTAMIX og þótt afleit viðgerð.

Styðjum samherja okkar sunnan heiða í mótmælunum.“

Þegar þetta er ritað hafa liðlega 100 manns lýst yfir áhuga á að taka þátt í mótmælunum. /EPE

Nýjast