Búið er að loka nokkrum deildum á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna inflúensunar sem hefur skollið á fullum þunga á sjúklinga. Um er að ræða flensu af A stofni (H3N2) og eru dæmi um að fólk hafi smitast þrátt fyrir bólusetningu. Allmargir sjúklingar hafa smitast og hefur verið gripið til þess ráðs að banna heimsóknir tímabundið á lyflækningadeild, geðdeild og skurðlækningadeild nema með sérstökum undantekningum.
Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga og handlækningasviðs á SAk, segir í samtali við Vikudag að það sé sjaldgæft að loka þurfi deildum vegna smithættu.
Inflúensan hefur einnig herjað á íbúa á Öldrunarheimilum Akureyrar undanfarnar vikur. Flensan hefur komið upp á tveimur heimilum og hafa sextán manns fengið veikina.
Nánar er fjallað um málið í Vikudegi sem kemur út í dag.