Framkvæmdum við Dalsbraut á Akureyri frá Miðhúsabraut að Skógarlundi lýkur í þessum mánuði en GV gröfur ehf. sjá um framkvæmdirnar við áfangann. Þetta gengur samkvæmt áætlun. Það er hins vegar óvíst hvenær verkið getur haldið áfram en það verður í allra fyrsta lagi í nóvember, sagði Guðmundur Gunnarsson hjá GV verktökum í samtali við Vikudag.