Bíllausi dagurinn er haldinn víða um heim á morgun, miðvikudaginn 22. september, þar á meðal á Akureyri. Á heimasíðu Akureyrarbæjar er fólk hvatt til að hvíla bílinn og ganga, hjóla eða taka strætó.
Dagurinn er lokahnykkur samgönguvikunnar sem hófst 16. september og snýst um að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir, heilsubætandi og hafa um leið jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.
Óvíða eru betri aðstæður en á Akureyri til að sleppa einkabílnum, enda eru vegalengdir stuttar og langoftast fínt veður. KortEr er frábær lausn til að átta sig á því hversu lengi maður er að komast á milli staða innanbæjar á stuttum tíma.
Í tilefni dagsins fá nokkur bílastæði í göngugötunni nýtt hlutverk. Lagt hefur verið á þau gervigras með hjólastandi, bekkjum og fleiru.
Minnt er á að það er alltaf frítt og hlýtt í strætó á Akureyri. Strætó-appið er auðvelt í notkun og virkar vel til fylgjast með vagninum í rauntíma, finna næstu biðstöð og skipuleggja ferðir. Smelltu hér til að nálgast appið.
Rafskútuleigan Hopp vill einnig hvetja sem flesta Akureyringa til að velja grænu leiðina og í tilefni bíllausa dagsins verður ekkert startgjald við leigu á hlaupahjólunum á morgun.