Aðgengi og umferðaröryggi við Bónus Naustahverfi hefur verið bætt til muna með nýjum aðreinum og fráreinum út á Miðhúsabraut. Þessar nýju leiðir eru staðsettar við norðvesturhorn bílastæðisins. Þar með minnkar álag á það sem var áður eina inn- og útkeyrslan við Kjarnagötu þvert á gönguleið.
Í frétt á vef Akureyrarbæjar segir að í tengslum við þessa breytingu hafi verið ráðist í ýmsar framkvæmdir innan og utan lóðar Bónuss. Graseyja hefur verið útbúin til þess að aðgreina inn- og útkeyrslu frá bílastæði og um leið var Miðhúsabrautin breikkuð lítillega á kaflanum niður að hringtorgi. Miðeyjunni er ætlað að koma í veg fyrir U-beygjur og beina umferð niður á hringtorg þar sem er auðvelt að snúa við ef þörf krefur.
Eins hefur nokkrum bílastæðum verið bætt við á norðurhliðinni. Til að bæta lýsingu á þessu svæði var tveimur ljósastaurum bætt við á Miðhúsabraut og tveimur innan lóðar Bónus. Þessar aðgerðir eru samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Haga og Rarik.