Starfsfólk á rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri hefur staðið í ströngu undanfarna daga við að vinna úr þeim mikla fjölda sýna sem berast inn.
Alls hafa verið unnin 3100 sýni í októbermánuði, þar af 650 sýni í gær og tæp 700 í dag. Enda hefur fjöldi smitaðra aldrei verið fleiri í umdæmi sjúkrahússins en nú, alls eru skráðir 144 í einangrun og 941 í sóttkví. Svo miklum fjölda fólks ýmist í einangrun eða sóttkví fylgir aukin sýnataka með tilheyrandi auknu álagi.