Veðurlagsins blíða eykur yndishag

Það viðrar svo sannarlega vel til garðyrkjustarfa i dag.    Mynd Heilsuvernd
Það viðrar svo sannarlega vel til garðyrkjustarfa i dag. Mynd Heilsuvernd

Steingrímur Thorsteinsson var ekki í vandræðum með að koma orðum að hlutunum  og hann á þessa hendingu  i fyrirsögn  hér að ofan sem reyndar má mæta vel yfirfæra á  okkur hér á Norðurlandi i dag.   Síðasti dagur vetrar og sólin leikur svo sannarlega við okkur. Lögmannshlíðin er algjör sælureitur og skelltu íbúar og starfsfólk sér út í sólina, byrjuðu að huga að beðum og tóku leikfimina úti í góða veðrinu

Í morgun komu þeir bræður Luddi og Dúlli heim eftir vetrardvöl í Hörgársveitinni, þeir voru ekki lengi að koma sér fyrir í garðinum og var vel tekið á móti þeim af öllum, mönnum sem dýrum.

 


Athugasemdir

Nýjast