Skarpur er kominn út

Ef þú ert ekki áskrifandi þarftu ekki að örvænta, blaðið er til í flestum betri matvöruverslunum á H…
Ef þú ert ekki áskrifandi þarftu ekki að örvænta, blaðið er til í flestum betri matvöruverslunum á Húsavík. Mynd/Linda Birgisdóttir

Í Skarpi sem kom út í dag er fjölbreytt og skemmtilegt efni. Opnuviðtalið að þessu sinni er seinni hluti viðtalsins við Lindu Birgisdóttur og Baldur Kristinsson sem birtist í síðasta tölublaði. Þau segja frá veikindum sonar síns Ívars Hrafns sem fæddist í desember á síðasta ári. Hann hefur glímt við erfið veikindi og greindist nýlega með sjaldgæfan lifrarsjúkdóm. Fjölskyldan er nú að búa sig undir að þurfa fara til Svíþjóðar í haust þar sem drengurinn mun fá nýja lifur.

- Atvinnulífið er á sínum stað en þar er rætt við Almar Eggertsson framkvæmdastjóra Faglausnar.

- Jóney Ósk Sigurjónsdóttir er Völsungur vikunnar

- Fatahreinsun Húsavíkur er að ganga í gegnum kynslóðaskipti, Skarpur heimsótti fyrirtækið.

- Ritstjóri þurfti sjálfur að hlaupa í skarðið í Matarkistunni og gerir það með glæsibrag.

- Grímur Kárason, slökkviliðsstjóri er í ítarlegu viðtali um starfsemi slökkviliðsins. Þetta og margt fleira í Skarpi í dag. Tryggðu þér áskrift með því að smella hér eða með því að hringja í 464-2000 eða 460-0750. Einnig má senda tölvupóst á skarpur@skarpur.is Þá má benda á að blaðið fæst í lausasölu í matvöruverslunum og á skrifstofu Skarps að Garðarsbraut 56.

Skarpur


Athugasemdir

Nýjast