Kveldúlfur snýr aftur á Hjalteyri 15. ágúst

Það er ótrúlega öflug dagskrá sem er i boði á Kveldúfli  sem fram fer á  Hjalteyri 15 ágúst n.k.
Það er ótrúlega öflug dagskrá sem er i boði á Kveldúfli sem fram fer á Hjalteyri 15 ágúst n.k.

Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram í einstöku umhverfi við Eyjafjörð.

Fram koma: Hjálmar, Benni Hemm Hemm, Bent, Inspector Spacetime, Saint Pete, Lúpína, RAKEL, Salóme Katrín, Kusk & Óviti, Pitenz og Amor Vincit Omnia.

Benni Hemm Hemm er einn af mörgum góðum sem treður  upp á  Kveldúfli

Hátíðarsvæðið verður í portinu á milli Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Kraftlyftingafélags Akureyrar (KFA), þar sem hrár iðnaðarsjarminn mætir Eyjafirðinum fagra. Hjalteyri hefur fest sig í sessi sem öflugur vettvangur lista og menningar og býður upp á kjöraðstæður fyrir tónlistarhátíð.

Á svæðinu verða matarvagnar, opnar vinnustofur listafólks, opinn pottur og svo verður hægt að fá sér tattú. Miðaverð er 12.990 kr og fer miðasala fram á www.kveldulfurfestival.is.

Hátíðin er haldin af Leyni og er styrkt af Hörgársveit.

Nýjast