Viðburðurinn Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi í tali og tónum og verður haldinn í Sundlaug Grenivíkur annað kvöld, fimmtudagskvöld, 10. september, og hefst klukkan 19:30.
Frumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um fjárlög fyrir árið 2027 liggur nú fyrir. Það hefur vart farið framhjá neinum. Ríkisstjórnin hreykir sig af því við hvert tækifæri sem gefst að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður á næsta ári. Það markmið eitt og sér er gott og gilt, og skiptir svo sannarlega máli, aftur á móti er alls ekki sama hvaða leið er farin að því að skila hallalausum fjárlögum. Sú leið sem ríkisstjórnin kýs nú ótrauð að feta vekur ugg svo vægt sé til orða tekið enda birtast í frumvarpinu skattahækkanir ofan á skattahækkanir.
Tvær nýjar íslenskar heimildamyndir verða frumsýndar á Húsavík fimmtudaginn 10. september. Önnur þeirra fjallar um Aðalgeir á Mánárbakka og hið einstaka minjasafn sem hann hefur byggt upp á Tjörnesi, en frumsýninguna ber upp á 90 ára afmælisdag Aðalgeirs. Hin myndin fjallar um Safnasafnið á Svalbarðseyri og frumkvöðlana sem þar hafa varðveitt og miðlað íslenskri alþýðulist.
Tveir þekktir erlendir sérfræðingar á sviði læsis og menntunar verða meðal aðalfyrirlesara á tveimur tengdum viðburðum við Háskólann á Akureyri: Námstefnu í Byrjendalæsi föstudaginn 11. september og ráðstefnunni Læsi til náms og yndis laugardaginn 12. september.
Opið bréf frá starfsfólki endurhæfingar- og öldrunarlækningarþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri til Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra, Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurjóns Þórðarsonar formanns fjárlaganefndar Alþingis og annarra þingmanna.
Sólveig Pétursdóttir, yfirlæknir endurhæfingar á Kristnesi, og María Pálsdóttir, hælisstýra, afhentu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra í morgun 2.511 undirskriftir þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við myglu á Kristnesspítala og tryggja fjármagn til nauðsynlegs viðhalds og endurbóta á húsinu.
Ólína lauk læknanámi frá Háskólanum í Debrecen í Ungverjalandi. Á námsárunum starfaði hún við Sjúkrahúsið á Akureyri og að námi loknu einnig á heilsugæslunni á Dalvík og á Hlíð.
Á síðustu önn, vorönn 2026, fóru fimm nemendur VMA í 3-5 mánaða skiptinám til þriggja Evrópulanda, Belgíu, Tyrklands og Lettlands, á vegum AFS-skiptinemasamtakanna og í síðustu viku fór einn VMA-nemi til viðbótar í skiptinám á vegum AFS til Slóvakíu. Þessir nemendur fengu fjárhagsstuðning frá Erasmus+ styrkjakerfi ESB, sem greiðir um 85% námskostnaðar. Í VMA stunda eru núna þrír AFS-skiptinemar, frá Japan, Slóvakíu og Þýskalandi, sem verða hér í 3-10 mánuði.