Félagslegt húsnæði í Grímsey Ekkert til fyrirstöðu að selja
Velferðarráð Akureyrarbæjar sér ekkert því til fyrirstöðu að húsnæði í eigu bæjarins verði selt.
Lagt hefur verið fram minnisblað í ráðinu varðandi félagslegt húsnæði í Grímsey. Lagt er til að húsnæðið sem nú er rekið sem félagslegt húsnæði verði rekið á öðrum forsendum eða selt út úr kerfinu. Umrætt húsnæði hefur ekki verið notað sem félagslegt leiguhúsnæði og því sér velferðarráðs ekkert því til fyrirstöðu að selja það.
Nýjast
-
Komum skemmtiferðaskipa fækkar um tæp 17% næsta sumar
- 12.12
Á fundi stjórnar Hafnasamlags Norðurlands í gær kom fram í máli hafnarstjóra að í stefndi að nokkur fækkun yrði á komum skemmtiferðaskipa til hafna sem lúta stjórn samlagsins eða um tæp 17% -
JÓLASÍLDIN
- 12.12
Út var að koma bókin Síldardiplómasía. Þar er fjallað um síldina "á alla kanta", um síldina í myndlistinni, bókmenntunum, stíði og þá er fátt eitt nefnt. Þá eru þarna fjölmargar girnilegar síldaruppskriftir og hér á eftir birtist ein, sem vissulega hentar þeim tíma sem nú fer í hönd. -
Fyrsta húið risið í Móahverfi
- 12.12
Fyrsta húsið er risið í nýju Móahverfi á Akureyri. Það er fjölbýli og stendur við Laugarmóa 1. Alls verða í húsum við Lautarmóta 1 – 3 og 5 50 íbúðir með sameiginlegum bílakjallara. Áætluð afhending íbúðanna er 2026. -
Litróf orgelsins nr 2: Aðventa og jól
- 12.12
Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju ætlar að halda aðra tónleika sína í litrófstónleikaröðinni á laugardag, 14. desember kl. 12. Umfjöllun um efnisskrána hefst kl. 11.45 -
Framkvæmdir standa yfir í Glerárlaug
- 12.12
Framkvæmdir standa yfir í Glerárlaug og er útisvæðið við laugina því lokað. Sundlaugin sjálf er þó opin. Á útisvæðinu er verið að koma fyrir nýjum heitum pottum, útisturtu, saunaklefa og köldu kari, auk þess sem svæðinu verður breytt og bætt verulega. Því miður bendir allt til þess að svæðið opni ekki fyrir jól, en stefnt er á opnun í byrjun janúar. Afgreiðslutími vetrar, frá 24. ágúst til 31. maí Mánudag til föstudaga: 06:45 – 08:00 og 18:00 – 21:00 Laugardaga: 09:00 – 14:30 Sunnudaga: 09:00 – 12:00 -
Mikill snjómokstur kallar á aukið fé
- 12.12
Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2024 við liðinn snjómokstur og hálkuvarnir upp á 60 milljónir króna. -
Blanda af fjölbýlishúsum og sérbýlishúsum í Móahverfi
- 12.12
Akureyrarbær hefur samþykkt að auglýsa eftir kauptilboði í 25 einbýlis- og þrjár raðhúsalóðir í Móahverfi. -
Jólin upp í kok!
- 12.12
Kona á rúmlega miðjum aldri heyrði um daginn lag Baggalúts um konu sem helst vill tékka sig inn á hótel á aðfangadag. Aldrei áður hafði ég lagt mig fram um að hlusta á textann sem talaði beint til mín fyrir um tuttugu árum. Ef ég hefði heyrt hann þá er ekki ólíklegt að ég hefði pantað mér hótelherbergi um jólin. -
KEA kaupir eignasafn Íveru á Akureyri
- 11.12
Ívera íbúðafélag, áður Heimstaden, hefur gengið frá samningum við dótturfélag KEA um kaup hins síðarnefnda á um 120 íbúðum Íveru á Akureyri. Kaupverð eignanna er rúmir 5 milljarðar króna. Ívera hefur nýverið gefið út áform um tvöföldun á eignasafni sínu sem er í dag um 1.600 íbúðir. Sala eignanna á Akureyri er liður í endurskipulagningu eignasafnsins og styrkir undirstöður félagsins fyrir frekari vöxt. Í viðræðunum lögðu Ívera og KEA áherslu á áframhaldandi húsnæðisöryggi fyrir leigutaka íbúðanna en stefna KEA er að reka íbúðasafnið til langs tíma og stefnir félagið á frekari vöxt á þessu sviði. Því munu viðskiptin ekki að hafa neikvæð áhrif á núverandi leigutaka. Viðskiptin marka brotthvarf Íveru af íbúðamarkaði á Akureyri og félagið stefnir ekki á frekari umsvif þar í náinni framtíð. Stefnt er að afhendingu eignanna fyrir jól. ---