Aldís Kara og Viktor Samúelsson íþróttafólk Akureyrar 2019

Viktor Samúelsson og Aldís Kara Bergsdóttir. Mynd/Þórir Tryggvason.
Viktor Samúelsson og Aldís Kara Bergsdóttir. Mynd/Þórir Tryggvason.

Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2019 var lýst í Menningarhúsinu Hofi í kvöld. Þetta var í 41. skipti sem íþróttamaður Akureyrar er heiðraður. Í ár varð sú breyting á að stjórn afrekssjóðs fer yfir allar tilnefningar frá aðildafélögum ÍBA og tilnefnir 10 einstaklinga af hvoru kyni sem kosið er um.   

Á athöfninni veitti Frístundaráð viðurkenningar fyrir Íslandsmeistara á árinu og sérstaka heiðursviðurkenningu auk þess sem Afrekssjóður Akureyrarbæjar veitti afreksstyrki til afreksefna ÍBA. 

Íþróttakona Akureyrar 2019 var kjörin Aldís Kara Bergsdóttir listhlaupakona frá Skautafélagi Akureyrar. Segir í umsögn að Aldís Kara sé frábær íþróttakona og flott fyrirmynd í sinni íþrótt jafnt á ís og utan íss. Hún sé félaginu sínu til mikils sóma.

Aldís Kara er að sýna stökk element sem ekki hafa sést áður hjá íslenskum skautara og var hún til að mynda með þrjú ólík þreföld stökk auk tvöfalds Axels í prógrömmunum sínum á tveimur síðustu mótum ársins auk þess að vera með spor og spinna á háum levelum.

Helstu afrek á árinu:

  • Skautakona Akureyrar 2019.
  • Reykjavíkurleikarnir 2019 (ISU mót) 2. sæti í Junior á nýju Íslandsmeti 108,45 stig (efst íslenskra skautara)
  • Norðurlandamótið í Linköping 2019 12. sæti 103,52 stig hæstu stig íslensk skautara á Norðurlandamóti
  • Vormót ÍSS 1.sæti í Junior á nýju Íslandsmeti 112,81 stig
  • Junior Grand Prix í Lake Placid 106,48 stig, hæstu stig íslensks skautara á Junior GrandPrix mótaröðinni.
  • Haustmót ÍSS 1.sæti á nýju Íslandsmeti 116,09 stig
  • Halloween Cup 2019 í Búdapest 108,61 stig, hæstu stig íslensks skautara á erlendri grundu auk þess sem hún náði lágmörkum í stutta prógramminu inn á Heimsmeistaramót unglinga.
  • Vetrarmót ÍSS 1.sæti á nýju Íslandsmeti 127,69 stig
  • Íslandsmeistaramót ÍSS árið 2019 Íslandsmeistari í listhlaupi í Junior flokki.

 Í 2. sæti varð Sóley Margrét Jónsdóttir í Kraftlyftingafélagi Akureyrar. í 3. sæti Hulda Elma Eysteinsdóttir í blakdeild KA. í 4. sæti Hafdís Sigurðardóttir í UFA og í 5. sæti Hulda B. Waage í Kraftlyftingafélagi Akureyrar.

Íþróttakarl Akureyrar 2019 var kjörinn Viktor Samúelsson í Kraftlyftingafélagi Akureyrar.

Helstu afrek á árinu:

  • Íslandsmeistari karla í kraftlyftingum 2019
  • 4.sæti í -120 kg flokki á EM í kraftlyftingum
  • Stigahæsti kraftlyftingamaður Íslands frá upphafi

Hans besti árangur 2019:

  • 372.5 kg hnébeygju
  • 290 kg bekkpressu
  • 340 kg í réttstöðulyftu
  • 992,5 kg í samanlögðu

Í 2. sæti varð Miguel Mateo Castrillo í blakdeild KA. í 3. sæti varð Þorbergur Ingi Jónson  í UFA. í 4. sæti varð Hafþór  Andri Sigrúnarson í Íshokkídeild SKA og í 5. sæti Alexander Heiðarsson í júdódeild KA

Heiðursviðurkenningu Frístundaráðs fékk Jóhannes Kárason fyrir mikið og óeigingjarn starf í þágu íþrótta- og félagsmála á Akureyri.

Frístundaráð veitti viðurkenningar til 13 aðildarfélaga vegna 311 Íslandsmeistara á síðasta ári og Afrekssjóður veitti 8 einstaklingum afreksstyrki.


Athugasemdir

Nýjast