Það hefur raungerst að PCC Bakki Silicon hefur boðað uppsagnir á 80 manns í verksmiðju sinni á Bakka við Húsavík og rekstrarstöðvun verksmiðjunnar fyrirhuguð í júlí næstkomandi. Ákvörðun byggir á erfiðleikum á mörkuðum fyrir kísilmálm og raskana á alþjóðamörkuðum í kjölfar tollastríðs.
Þetta er verulegt högg fyrir samfélagið, starfsfólk sem missir vinnuna og er hugur okkar hjá því og fjölskyldum þeirra. Fyrir samfélagið er líkt og um 3500 manns hafi misst vinnuna í Reykjavík með tilheyrandi áhrifum á fjárhag og atvinnulíf.
Sveitarstjórn Norðurþings og forsvarsfólk hafa fylgst náið með stöðu mála og verið vel upplýst að hálfu forstjóra PCC. Þrýst hefur verið á stjórnvöld, ríkisstjórn, ráðherra og þingmenn að bregðast við sem tryggir samkeppnishæfni verksmiðjunnar.
Verksmiðjan PCC Bakki Silicon skiptir ákaflega miklu máli fyrir samfélagið, atvinnulíf á svæðinu, byggðafestu og velferð íbúa því er brýnt að rekstrarstöðvun verði aðeins tímabundin.
Samstaða, úthald og framtíðarsýn er nú mikilvægari en nokkru sinni fyrr.