Vinnu við deiliskipulag í Hlíðarfjalli haldið áfram
08. mars, 2010 - 10:28 Fréttir
Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum, að
haldið verði áfram vinnu við deiliskipulag skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli í samræmi við afmörkun þess í
núgildandi aðalskipulagi og tillögur SE-Group um framtíðarnýtingu á skíðasvæðinu innan þess svæðis.Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt að þegar fyrir liggur
snjóflóðahættumat vegna svæðis sunnan núverandi skíðasvæðis, í Hlíðarskál, muni verða gerð breyting
á aðal- og deiliskipulagi ef niðurstaða þess verður jákvæð.
Skólalóðin við Glerárskóla hefur formlega verið tekin í notkun. Framkvæmdir hafa staðið yfir um nokkurt skeið en nú er þeim loksins að mestu lokið og leiktækin tilbúin til notkunar.
Starfsemi Fincafresh mun á næstu vikum verða flutt il Garðabæjar. Félagið hóf sína starfsemi á Dalvík en flutti til Akureyrar fyrir fáeinum misserum. Nú verður enn á ný lagt upp í ferðalag. Fincafresh selur ferska ávexti beint frá Spáni til áskrifenda.
Hafna þurfti tugum umsókna sem bárust um Heimavist MA og VMA nú á þessu hausti. Vistin er fullsetin, en þar búa nú um 330 nemendur sem stunda ýmist nám í Menntaskólanum á Akureyri eða Verkmenntaskólanum á Akureyri. Yfir 400 umsóknir bárust um vist á þessu hausti, en pláss er fyrir 330.
Starfsfólk Norðurorku tók þátt í Treyjudeginum í dag og mætti í sínum uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands 2026 sem hefst á Akureyri í næstu viku. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september.
Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til notalegrar samverustundar á Birkivelli í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september klukkan 14.00.