Vinnu við deiliskipulag í Hlíðarfjalli haldið áfram
Skipulagsnefnd Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum, að
haldið verði áfram vinnu við deiliskipulag skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli í samræmi við afmörkun þess í
núgildandi aðalskipulagi og tillögur SE-Group um framtíðarnýtingu á skíðasvæðinu innan þess svæðis.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt að þegar fyrir liggur
snjóflóðahættumat vegna svæðis sunnan núverandi skíðasvæðis, í Hlíðarskál, muni verða gerð breyting
á aðal- og deiliskipulagi ef niðurstaða þess verður jákvæð.
Nýjast