15. apríl, 2010 - 12:09
Fréttir
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun, fór Baldvin H. Sigurðsson bæjarfulltrúi VG, fram á að bæjarráði léti
gera könnun á fátækt meðal bæjarbúa. Bæjarráð samþykkti að fela almannaheillanefnd að móta tillögur að
könnun á greiðsluerfiðleikum meðal bæjarbúa og leggja fyrir bæjarráð.