Á fundi umhverfisnefndar Akureyrar í gær var tekið fyrir erindi frá Orra Árnasyni f.h. SS Byggis ehf þar sem óskað er eftir leyfi til að
byggja brú og veitingarstað/bakarí á hentugum stað við bakka Glerár.
Erindinu var vísað til umhverfisnefndar frá skipulagsnefnd til umsagnar. Fram kemur í bókun umhverfisnefndar að nefndin muni ekki taka afstöðu til
erindisins þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af Glerársvæðinu frá stíflu til sjávar.
Það var sannkallaður handagangur í öskjunni á Akureyri í vikunni. Tvö risastór uppbyggingarverkefni á sviði heilbrigðisþjónustu litu loks dagsins ljós sitt hvoru megin við sjálfan þjóðhátíðardaginn. Síðastliðinn mánudag var greint frá því að Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefðu tekið tilboði fasteignafélagsins Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Þursaholti sem mun rúma 140 íbúa. Á fimmtudaginn sem leið var svo tekin fyrsta skóflustunga að nýrri legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAK) samhliða undirritun samnings um jarðvinnu framkvæmdanna.
„Þetta sendir óskýr skilaboð til þeirra sem vinna að uppbyggingu millilandaflugs um Akureyri og Egilsstaði. Uppbygging nýrra flugleiða krefst langtímahugsunar, stöðugleika og fyrirsjáanleika,“ skrifar Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri í færslu á facebook síðu sinni. Tilefnið var umræða um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á Alþingi.
Ég las nýverið áhugaverða grein þar sem varað var við samfélagslegri þróun tengdri gervigreind. Margt sem kom fram í henni á fullt erindi og ég tek undir flestar þær áhyggjur sem þar eru reifaðar. Það er full ástæða til að staldra við. En það er líka ástæða til að spyrja fleiri spurninga, eins og hver eigi tæknina? Hver stýri henni? Hvaða áhrif hún hafi á vinnumarkaðinn, menntakerfið, lýðræðið og daglegt líf fólks? Eru þessi áhrif eingöngu neikvæð eða eru sum þau sömu og áður bara í nýrri mynd?
Flugdagur Flugsafns Íslands hefur verið haldinn árlega síðan árið 2000 og hefur ávallt verið vel sóttur. Í ár fögnum við sérstaklega 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar og mun hún taka virkan þátt í deginum með okkur að þessu sinni.
Í dag brautskrást fyrstu 9 stúdentarnir úr ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun frá Hjúkrunarfræðideild. Námið er 60 ECTS viðbótarnám á meistarastigi kennt í samstarfi við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands og veita skólarnir prófið sameiginlega. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirrar auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana.
Í dag undirrituðu heilbrigðisráðherra, Alma Möller og Guðmundur Viðar Gunnarsson og Hjalti Steinþórsson frá GV- Gröfum verksamning við Nýjan Landspítala ohf. um jarðvinnu vegna byggingar nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Samninginn vottuðu Guðjón Hauksson, forstjóri SAk og Sigríður Inga Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá SAk.