Vífilfell bruggar nýjan bjór úr lífrænt ræktuðu hráefni

Nú fyrr í sumar fékk Víking Ölgerð á Akureyri fyrst íslenskra ölgerða lífræna vottun frá vottunarstöðinni Túni. Vottunin hefur mikið gildi fyrir Víking Ölgerð sem nú hefur framleitt fyrsta íslenska bjórinn þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu lífrænt ræktuðu hráefni auk þess sem framleiðsluferlið hefur verið vottað af fagaðilum.  

Lífrænar aðferðir draga úr hættu á ýmiskonar mengun í matvælum enda kornið framleitt án eiturefna og tilbúins áburðar. Bjórinn er bruggaður eftir hefðum frá Pilsen í Tékklandi og ber nafnið Pils Organic.  Bjórinn er ljós á litinn og í hann er notað mikið af humlum sem gefur bæði gott bragð og lykt ásamt sérstöku eftirbragði. Bruggmeistarinn Baldur Kárason á heiðurinn af þessum nýja bjór sem eflaust á eftir að verða vel tekið. Pils Organic er eingöngu seldur í glerflöskum og er fáanlegur í Vínbúðum í Kringlunni, Skútuvogi og Heiðrúnu við Stuðlaháls, auk þess sem hann er fáanlegur á betri veitingastöðum og börum um allt land. Þá standa vonir til þess að bjórinn verði fáanlegur í Vínbúðum nálægt framleiðslustað, m.a. á Akureyri, Dalvík og Húsavík.

Víking Ölgerð á Akureyri fer ótroðnar slóðir þegar kemur að vörulínunni; Íslenskur úrvals, en Pils Organic er annar bjórinn undir þessari línu. Fyrsti bjórinn var Stout sem einnig var fyrsti Stout sem framleiddur hafði verið á Íslandi. Nú er Stout fáanlegur í fjölmörgum Vínbúðum og veitingastöðum bæði í glerflöskum og á krana, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast