Verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu Mæðrastyrksnefnd veglega gjöf

Sex verkalýðsfélög í Eyjafirði afhentu í dag Mæðrastyrksnefnd Akureyrar styrk að upphæð kr. 1.650.000. Jóna Berta Jónsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Mæðrastyrksnefndarinnar.  

Í ávarpi við athöfnina lýsti Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, yfir þakklæti fyrir hönd félaganna sex fyrir það mikla og góða starf sem unnið er í nefndinni. "Það er mikil gæfa að eiga að þær konur sem í Mæðrastyrksnefndinni starfa og eru tilbúnar að leggja mikla vinnu af mörkum til þess að rétta hjálparhönd þeim sem á þurfa að halda til þess að geta búið sér og sínum gleðilega jólahátíð. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn og er sárt til þess að hugsa að leggja þurfi til háar upphæðir til að mæta þörfum þessara einstaklinga," sagði Björn á heimasíðu Einingar-Iðju.

Mikið að gera

Jóna Berta sagði að þeir sem þyrftu á aðstoð á að halda þurftu að hringja í hana í síma 462 1813/8683143 eða í Stellu í síma 462 2975 dagana 7. til 11. desember. Einnig verður hægt að hringja í síma nefndarinnar 462 4617. Afhending fer svo fram dagana 16. til 21. desember í Íþróttahöllinni þar sem Mæðrastyrksnefnd er til húsa, gengið inn að vestan. Það er alltaf opið á þriðjudögum frá kl. 13:00 til 18:00 og þá daga sem úthlutun fer fram verður opið á sama tíma.

Jóna Berta sagði að það væri búið að vera mikið að gera hjá þeim því þörfin væri mikil, of mikil eins og oft áður. "Ég er hrædd um að það verði einnig erfitt hjá mörgum eftir jól, í janúar, febrúar og mars,en það eru mjög margir sem vilja leggja okkur lið nú fyrir jólin og vil ég þakka öllum fyrir þann góða stuðning sem við höfum fengið. Við gætum ekki gert þetta ef þið og aðrir á svæðinu hefðuð ekki sýnt slíkan samhug í verki."

Rétt er að vekja athygli á því að Mæðrastyrksnefnd Akureyrar aðstoðar fólk um allan Eyjafjörð og starfar allan ársins hring þótt mestu annirnar séu nú eins og jafnan áður í kringum jólahátíðina. "Þó svo við auglýsum ákveðinn tími til umsókna vegna aðstoðar fyrir jólin munum við ekki neita fólki sem á aðstoð þarf að halda og hefur samband við okkur eftir þann tíma. Ábendingar eru einnig vel þegnar ef fólk veit um einhvern sem þarf aðstoð en af einhverjum ástæðum getur ekki óskað eftir henni," segir Jóna Berta á heimasíðu Einingar-Iðju.

Félögin sex sem færðu nefndinni styrk í dag eru Eining-Iðja, Félag byggingamanna Eyjafirði, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrennis, Sjómannafélag Eyjafjarðar og Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis.

Nýjast