Umferðaróhapp varð um klukkan fimm í morgun þegar tvær ferðakonur veltu bifreið sinni á Svalbarðsströnd. Að sögn lögreglu eru konurnar ómeiddar en bíllinn var fluttur af vettvangi mikið skemmdur með dráttarbíl.
Mæðgurnar Fríða Freydís og Ásta Birna brautskráðust saman úr stjórnun frá Háskólanum á Akureyri á Vetrarbrautskráningarhátíð háskólans sem var haldin í Hátíðarsal háskólans 14. febrúar.
„Það á eftir að koma í ljós á næstunni hvort og þá hverjir fylgi honum. Það skiptir eflaust talsverðu máli varðandi gengið í komandi kosningum,“ segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri. „Spennan nú snýst svolítið um hvort hann nái með sér hluta af baklandi flokksins. Þá getur ýmislegt gerst.“
Sveitarfélagið Norðurþing stendur sterkt og mikil tækifæri til uppbyggingar. Á árinu 2024 var fjárfest fyrir um 500 milljónir og ríflega 700 milljónir árið 2025 í A-hluta. Það var mögulegt vegna aga í rekstri og innkomu síðastliðin ár. Engin ný lán hafa verið tekin á kjörtímabilinu fyrren nú þegar við verðum fyrir alvarlegu tekjufalli og fimmtíu milljónum minna í kassann á mánuði. Það er staðreynd sem við verðum að horfast í augu við af ábyrgð og festu. Slíkar aðstæður kalla á erfiðar ákvarðanir. Við megum þó aldrei gleyma því að á bak við hverja tölu eru störf fólks, fjölskyldur og þjónusta sem skiptir íbúa okkar miklu máli. Lántaka var nýlega samþykkt samhljóða og í samræmi við fjárhagsáætlun til að ljúka stórum framkvæmdum sem þegar eru hafnar eða á teikniborðinu eins og félagsmiðstöð og frístund við Borgarhólsskóla og hafnarframkvæmdir við Suðurgarð. Lántaka er varasöm ef engin langtímaáætlun er til eða pólitísk skammtímahugsun ræður för.
„Ég er ótrúlega stolt og ánægð af okkar starfsfólki og þeim árangri sem við höfum náð nú þegar við fögnum fyrstu fimm árunum í okkar starfsemi. Þessi ár hafa verið fjölbreytt, gefandi og lærdómsrík,“ segir Sigrún V. Heimisdóttir eigandi og framkvæmdastjóri Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar á Akureyri. Í tilefni tímamótanna verður opið hús hjá stofunni í Glerárgötu 34, annarri hæð á morgun, föstudaginn 6. mars þar sem kostur gefst á að kynna sér starfsemina og þiggja veitingar. „Við erum á sama tíma að taka vaxtakipp og stækka,“ bætir hún við.
Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur krafa frá Gentle Giants upp á tæplega 91 milljón króna. Kröfan er gerð í kjölfar dóms Landsréttar, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að innheimta farþegagjalda hafnarsjóðs á árunum 2018–2025 hafi ekki staðist lög.
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir glæpsamlega gamanleikinn Átta konur, eftir Robert Thomas á Melum í Hörgársveit í kvöld, fimmtudagkvöldið 5. mars kl. 20. Mikið er um söngva og dans í verkinu. „Þetta hefur verið virkilega skemmtilegt ferli og ég hef sjaldan, ef nokkurn tíma hlegið svona mikið á einu æfingaferli. Leikhópurinn er stórkostlegur og það er unun að fylgjast með allri þessari leikgleði. Það er ekki annað hægt en að skemmta sér með hópnum,“ segir Kolbrún Lilja Guðnadóttir leikstjóri.
Bæjarstjórn samþykkti samning Akureyrarbæjar við Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Grýtubakkahrepp og Svalbarðsstrandarhrepp um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu með 11 samhljóða atkvæðum á fundi sínum s.l. þriðjudag og vísaði honum til seinni umræðu í bæjarstjórn.
KEA og Drift EA hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að efla frumkvöðlastarf, nýsköpun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja á Norðurlandi. Með samkomulaginu gerist KEA bakhjarl Driftar EA og tekur þar með virkan þátt í að styrkja stuðningsumhverfi sprota- og vaxtafyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu. Sterkir heimaaðilar koma nú saman að því að styðja við þessa mikilvægu umgjörð.